Ég skal segja ykkur það að aukin tíðni blogga kemur skáldagáfum mínum ekkert við. Það er bara ekkert að gera hérna og mér leiðist.
Ég er búin að lesa áhugaverða ritgerð eftir Max Weber, "The Protestant Ethic and the Spirit of Capitalism". Þetta er í Amrískamenningardótinu sem ég byrja í haust og fjallar um af hverju Mótmælendur eru þeir ríkustu og mestu kapítalistarnir. Svo þurfti ég að heimfæra þetta uppá Amríkuna og komst að þeirri niðurstöðu að það væri vegna þess að þar er aðskilnaður ríkis og kirkju, svo fólk er ekki neitt til þess að ganga í kirkju, heldur velur það það sjálft .. og safnaðarmeðlimir ráða hver fær að vera memm og þessar litlu deildir innan kirknanna virka sem einhversskonar stoðpallur, enda virðing sem fylgir virtum deildum o.s.fr.
Svo verður auðvitað að líta til Guðhræðslunnar, t.d Kalvínistar sem trúðu því að þeirra örlög hefðu verið ráðin fyrir 10.000 árum þegar guð tók sig til og skapaði himinnogjörðogalltþaríkring og hvort þau færu til himna eða heljar væri ákveðið þá. Nú, hvað gera bændur þá, til þess að finnast líf sitt hafa tilgang þá vinna þau. Og vinna, og leggja fyrir, og vinna. Svo er margt fleira en þetta er ágætis lesning.
Núna er ég að lesa Rights of Man eftir hinn breska fátækling Paine, revolúsíonarí með meiru sá maður. Læt ykkur vita.
Nú er staðan víst orðin sú að ég djamma um helgina

Sjálfstjórnin kannski ekki meiri en ég er svo óskaplega sybbin eitthvað undanfarna daga að hvítvín&bjór hljómar ekkert svo spennandi. Ætli það breytist ekki eftir góðan nætursvefn í nótt, hver veit.
Svo er reyndar eitt dáldið spennandi að gerast í kvöld. Nú er verið að kasta út enn einum úr Big Brother húsinu og valið stendur á milli dramadrottningarinnart og prinsessunnar Jen og svo hinum fjallmyndarlega rauðhærða kokks Rex. Engin spurning hver fer eftir "Spitgate" en þið vitið hvorteðer ekkert um þessa þætti svo ég skal breyta umræðuefninu.
Það er spáð svo góðu veðri um helgina pant fara í sund. Er einhver með? Þynnkusund og svo pulsa og kók eða Makki eða Vitaborgari jafnvel, já hann hefur ekki notið okkar þetta sumarið er það.
Muniði eftir Bólu. "Hittumst heil en ekki hálf!" Miklu skemmtilegra en Skoppa og Skrítla og annað sem ungum börnum er boðið uppá í dag ... já þegar ég var ung voru aðrir tímar ...
Hérna er ellismellurinn með yngismeynni Dönu og bestu vinum sínum bjórunum:

Og svo eftir minna en 4 vikur kemur þessi fjallmyndarlegi maður til Íslands:

Oh, ég var búin að gleyma hvað hann er sexí. Orð að sönnu.
Hagiði ykkur nú vel, og lifið sem blóm í eggjum.
Ástin að eilífu með kossum og knúsum og rósum,
Eyrnamergur Hannesson.
PS. Ég er að pæla að fá mér kannski nýtt blogg. Ögmundur orðinn þreyttur. Hvað finnst ykkur?