Ég var beðin um að skrifa fleiri blogg og hafa það í léttari dúrnum svo ætli maður hlýði ekki. Enda getur lífið verið svo leikandi létt, þó það sé það kannski ekki núna.Nei, því núna er ég með harðsperrur í hverjum vöðva eftir hreyfingu dag eftir dag .. mikið óskaplega er gaman að dansa. Var búin að gleyma því í allri letinni sem ég bjó við úti. En ég tók mig til og e-mailaði stelpuna sem sér um DanceSoc og nú verður hellt sér útí þetta enn á ný .. vonandi.Ég ákvað að djamma um helgina. Það gekk ekki alveg eins og skildi og eftir drykkju útí garði meikaði ég ekki bæinn - gerði þó heiðarlega tilraun en þurfti að snúa við á miðri leið. Obb. Bæti það upp um helgina með MH-túttumat og svo afmæli hjá Kristó hennar Sillu. Þá verður sko dansað, ha, stelpur Ef ykkur langar í ódýrar pakkaferðir eitthvað þá mæli ég með www.icelolly.com. Svaka ódýrt, og svo svona líka íslenskt nafn, ha. Verst að það er ekki flogið frá Íslandi en maður gerir sem þarf að gera. Costa Brava virðist einmitt heilla mig og Lee rosalega - þó Grikkland/Kýpur hljómi kannski betur þá verður nú líka að passa budduna, sérstaklega í ljósi þess að við vorum að panta ferð til Glasgow, við mæðgurnar 4. Þar ætla ég sko eitthvað að versla, höfum bata 3 daga og 3 nætur svo eins gott að nýta tímann vel. Önnur af þessum flissandi er núna á Kanarí að baða sig í sól og bjór. Góða skemmtun elskan Þér veitir eflaust ekki af svona kúl sólgleraugum.PS. Fer út 20. sept og kem heim 15. des. Vill einhver vera memm fram í sept? Allir að fara frá mér ..
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.