Sólin skín og álfarnir tralla í Skírisskógi. Hér er allt í sama
gamla farinu.
Var Booze Cruise á Mánudaginn, þurftum að skella okkur enda
Stúart Litli orðinn 19 ára gamall. Trúi ekki hvað hann er ungur,
haha. Allavega, við gerðum þetta með stæl, fórum út í góða veðrið í
byrjun dags með bjór og strákana okkar, héldum síðan blindfull uppí
bát þar sem áfengi var ókeypis á boðstólum og drykkjan hélt áfram.
Í bátnum man ég bara eftir gríðarlega lélegum bröndurum og Rory
næstum kastað útí lækinn. Síðan var stefnan tekin á - já þið vissuð
það, Oceana. Eftir tjútt og trall og óskiljanleg sms tl Arwen til
að útskýra hvar ég var (gekk ekki þar sem hún varð nokkuð
áhyggjufull) drapst ég dauða mínum og tók Walk of Shame á þetta, þó
ekki sem ég átti skilið. Geggjað kvöld.
Erum orðin 6 í húsinu okkar á næsta ári, sú sjötta er
Ciaran-kærastan og gæðablóðið Jenna, þrátt fyrir að vera
fyllibytta. Held hú passi vel inní.
Prófin að byrja... ansans.
Kíktum annars út á stelpukvöld (með einum kynskiptingi) fyrir
afmælið hennar Jennu, þar sem myndavélin mín fór á overload yfir
pósmyndum af Jay og vinum hans. Skemmtilegt kvöld fyrir utan það að
þegar við komum heim fór ég í kapphlaup við Ciaran og datt og
eyðilagði á mér hnén gjörsamlega með sárum sem enn hafa ekki gróið
10 dögum síðar. Þurftum líka aðlaumast út til þess að sjá strákana
okkar en þetta var 2 dögum eftir að Casey og Stuart hættu sama ...
náðum að lúmskast þangað í knús frá piltunum áður en 4 manna walk
of shame klukkan 7 um morgunin tók við, orðið alltof algengt að við
séum bara í Mario Cart fram undir morgun, endilega æðislegur leikur
þar á ferð. Pant vera Bowser.
Smá myndir:

Booze Cruise




Hún var að reyna að sleikja á mér sárið ... don't ask.
Afmæli Jennu anyways.
Svo kossar og knús heim, sjáumst í síðasta lagi laugardaginn 2
júní - kem heim um kvöldið 1sta!