Ögmundur ritar frá Reykjavík

Ögmundur hinn stóri

27.08.2008 11:49:18 / eyrun

Haustbleyði

Þó það sé rigning úti er sólskin í mínu hjarta. Það er líka rigning í Glasgow en verða regnbogar í hjartanu mínu á morgun þegar ég lendi þar; tilbúin í góðan nætursvefn - maður verður nú að vera hress ef maður ætlar að tækla góða verslunarferð. Ég og Hrabba erum líka ofurspenntar enda er ekkert í okkar troðfulla fataherbergi sem hægt er að ganga í. Samt ekki hægt að henda þessu - ég skil þetta ekki!

Ég ætla að kaupa mér ballerínuskó og hælaskó - nokkur pör. Bikiní fyrir sólina okkar Lee's og buxur því mínar eru allar terrible. Íþróttabuxur og leggings, kjóla, bæði fína og hversdags. Boli og pils. Það verður allt endurnýjað og kannski líður manni betur með að henda gömlum tuskum ef maður veit að maður kemst í eitthvað nýtt og fallegt eftirá!

Síðasta helgi var fín. Ætlaði að vera edrú á föstudeginum, fór svo í partý á föstudeginum og var eitthvað ekki að fíla mig og fór heim. Held að föstudagsdjömmin geri sig illa hjá mér lengur; er alltaf svo þreytt og næ aldrei að endurnæra mig enda eini tíminn sem ég fæ að sofa út er óþunn á laugardagsmorgnun - og það getur verið erfitt þegar lítll strákur vill fara í boltaleik við hurðina mína :D Hehe.

Á laugardeginum var afmæli hjá Elínu Á. og við mættum bara eiginlega allar tútturnar. Það var mjög gaman og við sungum afmælissönginn uppfullar af helíumi (ég skrifaði fyrst heróíni! Jesús.) og átum köku. Svo var það Apótekið og Dana og Arna komu þangað og bara mjög gott kvöld, takk fyrir stelpur mínar. Endurtökum þetta vonandi sem fyrst; nær engri átt annað!

Arna er að flytja út á morgun og það var kökuboð hjá henni í gær. Mikið er hún myndarleg stelpan, Dana getur átt von á ljúffengum tertum og gúmmelaði á hverjum degi held ég. Það kom alveg nettur fiðringur í okkur þegar við fórum heim - 3 vikur fyrir Dönu, 3 og hálf fyrir mig. Ég er komin með nóg af vinnu og rúmar 3 eftir; það er orðið dimmt og kalt og mig langar í nýja húsið mitt með gamla kærastanum mínum og labba í skólann og fara í ræktina og kannski læra. Held það sé kominn tími til.

Nú er ekki mikill tími eftir samt. Verð í Glasgow þessa helgi; svo ein helgi óráðin; svo síðasta helgin. Þetta líður og líður en ég held við fögnum bara.



Ég og Dana ógeðslegakúl.



Elsku túttur!



NAMMINAMM.

Veriði nú ljúf og góð í haustinu. Þið vitið að það er að koma september! SEPTEMBER! Það þýðir haust og það þýðir kuldi og það þýðir úlpa. En það þýðir líka lærdóm og kúr og Ally McBeal. Það þýðir endalok Big Brother - held að Lisa mín hverfi frá á föstudaginn :( - en byrjun góðs vetrarsjónvarps. Nýjar haustmyndir og gömul download. Teppi og kakóbolli á meðan rigningin hellir sér yfir okkur og kannski einn eða tveir kossar í rigningunni.

Hlakkiði ekki bara til? :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 14:17:51 / eyrun

ÁFRAM ÍSLAND

Til hamingju með þennan FRÁBÆRA árángur! Við spilum um gullið á sunnudagsmorgun! Allir saman nú ÁFRAM ÍSLAND!!!!!!!!!!!!!!



ÞIÐ GETIÐ ÞETTA STRÁKAR!

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 11:48:58 / eyrun

Þetta vikulega!

Ég þori að veðja að fólk kíkir bara á síðuna mína á miðvikudögum. Þá er alltaf eitthvað ferskt að segja frá.

Núna er það helst í fréttum að Íris er farin með fullt af skóm til Danmerkur í háskólanám og kannski einn bjór. Hún fór á mánudaginn og skólinn byrjar núna eftir viku hjá henni, óska henni alls hins besta! :) Þetta þýðir að í dag fer ég út eftir mánuð og sama hjá Dönu nema 5 dögum styttra.

Síðásta föstudag ætluðum við Íris að fá okkur nokkra bjóra, kíkja í bæinn örstutt og snemma heim. Snemma heim fórum við en það var ekki fyrr en eftir 1 metra af bjór sem mín vann á English. Og þessi metri er hvorki meira né minna en 10 litlir bjórar og því var kvöldið endað með langloku með skinku og pítusósu og American Dad.

Ég varð dáldið þunn á laugardaginn en það var ekkert sem McDonalds lagaði ekki. Svo fór ég til Öldu í kveðjudjamm Írisar áður en við Dana skelltum okkur á GusGus. Það var bara lala, ekki alveg beint tónleika stemmning, meira eins og skólaball, en við redduðum þessu, fórum á 11 og dönsuðum 90's og alveg æðislega gaman.

Ég held ég verði edrú einn dag þessa helgi, svo Menningarnótt með MH-túttum, því svo er Glasgow helgina eftir og ég verð að eiga efni á fötum og þesskyns. Helgin eftir það verður eitthvað spes, og svo er það lokadjamm, áður en England tekur við. Úff, ég er orðin spennt, ætla að byrja á því að sleikja sólina einhversstaðar, læra, vera í dansi og rækt, o.s.fr o.s.fr.

Á föstudaginn er aftur kosið út í Big Brother og hún Lisa mín er ein af þeim sem íbúar hússins kusu til þess að verða kosna út. Það er húmer tvö-ið mitt, Sara, líka, en sem betur fer fylgir þeim WAG-ið, dramadrottningin, og leiðindatíkin hún Nicole, svo ég óska þess innilega að hún verði kosin. Einhver sem er staddur í Bretlandi kjósa Nicole út takk.

En nú ætla ég að vorkenna sjálfri mér yfir að fara ekki í mat fyrr en hálf 2 og skila bara kveðju. Kannski leiðinlegt blogg en þúst, kominn tími til .. á þetta vikulega .. :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 14:05:14 / eyrun

Fullt um fyllerí og StóraBróður

Í dag er miðvikudagur sem þýðir að sjálfsögðu að lifrin hlakkar til helgarinnar. Kannski ástæða til - er að fara á GusGus á laugardaginn og ætli það verði ekki að sopa smá af stút fyrir þann viðburðinn. 8)

Um síðustu helgi var Gay Pride. Ég og Dana kíktum galvaskar í bæinn í sól og blíðu og fylgdumst með atriðum á eftir atriðum á eftir atriðum við mikla gleði. Las samt grein í einhverju blaðinu sem mér fannst mjög eiga rétt á sér - á hverju Gay Pride eru atriðin hreint út sagt stórkostleg; litrík og skemmtileg; hávær og hress. Og beggja vegna göngunnar standa áhorfendur, oftar en ekki með krosslagða handleggi og fýlusvip. Komon! Það er ekki fyrr en Páll Óskar rekur lestina sem eitthvað lífgar við enda ótrúlegur maður vægast sagt. Kannski þarf að breyta uppsetningu göngunnar en held að áhorfendur verði fyrst og fremst aaaðeins að taka meiri þátt - ég tek þetta líka til mín svona by the by.

Nú styttist í haustið og Íris hefur búferlaflutninganna núna á mánudaginn. Dana fylgir eftir tæpum mánuði síðar og ég rek svo lestina þann 20. sept. Kominn smá fiðringur í hjartað yfir að fara, orðið rosalega langt síðan ég hitti þau flest nema Lee, sem ég er svo auðvitað spenntust fyrir að hitta aftur. Svo verðum við Dana loksins í sama landi í heilt ár; ekki gerst í rúm 3 ár frá því ég fór fyrst að skoða ranchið hjá Bush og alvöru kúreka í BNA. Verður alveg yndislegt :)

Svo leita ég hér með til allra fótboltanörda. Ég er að "taka þátt í" Fantasy Football Premier League, þar sem ég vel einhverja góða kalla og bý til mitt eigið lið úr þeim góðu köllum sem spila í ensku meistaradeildinni og fæ svo stig eftir því hvað þeir skora mörg mörk eða verja mörg eða hvað og hvað. Dabbi tók sig til og joinaði deildina sem ég og Lee berjumst við hvort annað í og Neill er þar líka ásamt einhverjum vinum Lee's svo fólk sér að samkeppnin er gríðarleg - og ég eina stelpan. Svo fékk ég að heyra í gær að Fabregas er meiddur!! Og því fer liðið mitt algjörlega á hvolf og ég veit ekki hvað skal gera. Ætli ég velji ekki einhvern ódýrari þangað til að hann nær sér? Eða hvað gera bændur!? HJÁLP!

Big Brother heldur áfram og þó augun fylgist ekki með af jafn miklum krafti þá á ég mér mitt uppáhald. Hún lítur út eins og hún hafi verið maður í fyrra lífi, er fertug og í brjáluðu formi og með tattúveraðan eyeliner. Hún hefur hitt grænar geimverur sem stálu tjaldinu hennar og borðaði einu sinni tuttugu pylsur á mettíma, auk þess sem hún byrjaði í spretthlaupi 18 mánaða. Maðurinn hennar er frá Manchester en þykist vera ítalskur og kallar sig Mario og er því miður búið að kjósa hann út. Já, hún heitir Lisa Appleton og er alveg snarklikk en gáfuð og fyndin og veit vel hvað syngur og ég ætla að styðja hana þó svo að hún sé ekki í uppáhaldi hjá öllum.

Á föstudaginn hverfur einn í viðbót og valið stendur á milli hennar ofurljúfu og góðu Rachel sem drap næstum gullfiskinn þeirra með því að gefa honum of mikið að borða (ég held hún hafi tekið hann uppúr til að reyna að knúsa hann) og vöðvabúntsins Stuart sem er líkt og Lisa með tattúveraðan eye-liner og undarlegt skegg, en hann er dáldið sætur. Held hann fari samt pottþétt því enginn mun hafa það í sér að kjósa út yndið hana Rachel sem er í öðru sæti á uppáhaldslistanum mínum.

Í þriðja sæti hjá mér er albínóinn svarti hann Darnell. Hélt aldrei mér gæti þótt albínói sætur en það er eitthvað við hann. Hann er uppfullur af visku og biturð reyndar en les fólk ótrúlega vel og svo er hann söngvari. Ahhh ;) Fjórða er beibið Sara sem lítur út eins og Angelina Jolie og er þvílíkt flört, held að allar stelpur ættu að fá lánað laufblað úr bókinni hennar.

Sú sem ég gjörsamlega þoli ekki er helv. smákökuskrímslið Kat frá Tælandi. Hún kom inn öskrandi "COOKIE POWER" og hefur ekki þagað síðan, grætur við minnsta mótlæti og er greinilega að gera úr sér vörumerki. Allir sem fylgja henni ekki "brjóta á henni hjartað" og þannig fær hún vini sína til að vorkenna sér og kjósa "óvini" hennar til útkosningar. Hún er lygin og svikin og gerir mig brjálaða. 

Lisa
Uppáhaldið mitt hún Lisa

Sara

Angelina Jolie hvað!

Darnell

Ókei .. kannski ekki sætur .. en þegar þið kynnist honum .. :^)

Mario

Ítalski folinn frá Manchester (hann heitir í alvöru Shaun)

Kathreya

Og svo helvítis smákökuskrímslið. Sjáiði ekki á henni hvað hún er pirrandi!!

Annars hef ég ekki mikið annað að segja. Í vinnunni eins og vanalega og get sem betur fer unnið til 18. sept. Hef þá einn dag í undirbúning áður en ég fer en held það sé alveg nóg; orðin vel vön, enda kemst þetta fljótt upp í vana.

Joe, besti vinur pabba, er hjá okkur núna í heimsókn og voða gott að hitta hann. Sá er þó gallinn á gjöf Njarðar að þarmeð missi ég herbergið mitt og gisti uppí hjá mömmu. Sem er svosem í lagi ef það þýddi ekki að ég þyrfti að vakna kl 7 í stað 8 við útvarpsvekjarann hennar. En svona er gestrisnin; held ég hafi bara gott af því að verða morgunhani. Allavega í tvo morgna enn!

Jæja, eigum við ekki skiljast með brosi og kossi:
 

Væmnin í fyrrúmi að vanda! Og kramið nef.

Kannski hittumst við um helgina. Ég verð í það minnsta djammandi allavega eitt kvöldið. Nenniði að hringja í mig!

(Og kommenta takktakkogbless)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 12:04:40 / eyrun

Kysserí&kelerí&fyllerí&djamm

Jæja, nú er þessi merka helgi Verslunarmanna un garð gengin og ýmislegt gaman gert.

Fjörið hófst á fimmtudaginn þegar ég og Dana - alveg ofurstressaðar og spenntar - fórum uppá flugvöll að sækja ótrúlega tanaðan Lee og vodkann hans. Svo var keyrt heim og hann hitti mömmu og litla og borðaði kvöldmat og svo fórum við á Hressó og þá byrjaði fjörið :) Byrjuðum ég og Lee, Dana, Dabbi og Steinunn en fljótt fjölgaði þegar Íris og Alda og María og Arna og frænka Örnu mættu og drykkjuleikir og danserí tók við. Rosagaman sko.

Vöknuðum svo eldsnemma :$ á föstudeginum og fórum Gullna Hringinn. Lee var yfir sig hrifinn þá sérstaklega af Kerinu og Strokki en Geysir er ennþá/aftur útdauður greyið. Gullfoss var mikilfenglegur að vanda og Þingvellir alltaf jafn fallegir. Fórum síðan út að borða og enduðum í partýi hjá Maríu áður en við kíktum í bæinn.

Á laugardeginum var alveg æði. Við byrjuðum á því að fara í bæinn og rölta um; tylltum okkur við Sólfarann og höfðum það notalegt í sólskininu. Komum síðan heim og hentumst strax uppí Hvalfjörð í útilegu. Það var algjört æði; hef sjaldan séð Lee jafn fullann enda eyðilagði hann eitt stk. buxur og olnobgann á sér. Átum grillmat og djúsíheit og fullt af snakki og drukkum bjór.

Á sunnudeginum komum við heim uppúr hádegi því Dana og Arna voru að fara til Eyja. Fékk æðislegt símtal frá Dönu í miðjum Brekkusöng og það þarf bara að líta á myndirnar til að sjá hvað það var gaman hjá þeim :) Ætli maður bregði sér með á næsta ári? A.m.k pottþétt ef ég kem heim næsta sumar:)

Á meðan þær drifu sig með Herjólfi sýndi ég Lee Bláa Lónið og hann var auðvitað hrifinn; fannst samt búið að gera það heldur tilgerðarlegt og ónáttúrulegt sem er nú svosem rétt; allt gert til að græða. Fengum okkur pulsu númer 2 (bestar í heimi) og fórum í gufu og settum á okkur facemask. Bara kósý. Fórum síðan heim og reyndum að losa af okkur slenið áður en við fórum til Maríu í smá kósýpartý með henni og Dagbjörtu og Öldu. Það kvöld var alveg rosalega gaman og vorum í bænum til um hálf 7, eftir ótal skot, Hlölla og leigubílaröð.

Mánudagurinn var bestur held ég; uppá svona kósýheit og rómantík; sváfum út og kíktum í bæinn; tylltum okkur við Höfnina hjá veiðimönnum og svo aftur hjá Sólfaranum okkar; röltum um Hafnarstrætið og fengum okkur hvítvín og góðan mat á Caruso. Fórum síðan á Sólon í einn bjór áður en við hentumst heim í rómantískar kveðjumyndir og kysserí.

Svo þurfti sætileeus (hahaha ég bara þurfti) að fara og núna kúri ég bara við sjálfa mig sem er svosem ágætt bara enda þarf þess bara í einnoghálfan í viðbót:)

Var svo veik (örugglega bara ofþreytt eða e-d) þriðjudag og miðvikudag með hita og hálsbólgu og beinverki en leiddist svo að ákvað að skella mér í vinnuna í dag og sé ekki eftir því. Gay Pride um helgina og eflaust hristir maður einhverja anga þá og svo Glasgow eftir 3 vikur. Versl, versl, veitir ekki af, á ekki bót fyrir boruna á mér.

Annars getiði hér séð helstu ævintýri helgarinnar:

Æi netið er ógeðslega hægt. Ég set inn myndir eftir mat. Les þetta örugglega enginn fyrr en þá hvorteðer. 






Nammnammnammnamm









Gullfoss í baksýn



Knús á Geysi



Omnomnomn

Jæja þetta er svona kannski það heitasta. Njótið vel! :)

» 4 hafa sagt sína skoðun